Allir að skella sér í Skagafjörð

Velkomin í Skagafjörð á ísbjarnaslóðir Hvernig væri að skella sér í Skagafjörð í sumar. Þar eru ævintýri og afþreying á hverju strái. Viltu sjá ísbjörn, elta ísbjörn eða borða ísbjörn. Endalausir möguleikar sem bjóða upp á gríðarlegt adrenalínkikk. Skagafjörður er staðurinn þar sem hlutirnir gerast aftur og aftur.Ratleikur við Hraun á Skaga alla fimmtudaga, 18 ára aldurstakmark. Spennandi berjaferðir á Þverárfjalli fyrir alla fjölskylduna á þriðjudögum. Ný skotsvæði Skotfélagsins Ósmanns á Þverárfjalli og á Skaga opnuð. Ævintýralegar flugferðir í leyfisleysi þar sem bjarndýra er leitað í lágflugi. Tveggja daga skotnámskeið hjá skyttum norðursins. Uppstoppuð bjarndýr eru til sýnis í sundlaugum, skólum, leikskólum og á öllum veitingastöðum í Skagafirði. Sögustundir hjá Náttúrustofu Norðurlands Vestra alla morgna frá kl. 10-12 um ísbirni og hegðun þeirra. Umhverfisráðherra mætir á einkaflugvél staðinn um leið og ísbjörn birtist. Icelandair býður upp á ódýrt flug frá Kaupmannahöfn í tengslum við bjarndýrafundi. Varðskip til sýnis í Sauðárkrókshöfn alla daga frá 09-17 Stórkostlegur dýragarður opnaður á Skaganum í samvinnu við Dönsk yfirvöld, fjöldi villtra dýra er á svæðinu. Leiðsögn um dýragarðinn fæst hjá lögreglunni á Sauðárkróki. Ís á tilboði í öllum helstu verslunum á svæðinu. Skíðasvæði Tindastóls er í hjarta bjarndýrasæðisins og því spennandi kostur fyrir skíðafólk. Frábærar hópeflisferðir fyrir fyrirtæki á Höfuðborgarsvæðinu. Girnilegar bjarndýrasteikur á veitingahúsunum. Danskur Bjarnarbjór á tilboðsverði. Daglegir fyrirlestrar frá frægu fólki í 101 um hvernig eigi að fanga ísbirni. Þyrla landhelgisgæslunnar sveimar yfir og upplýsir fjölmiðla og ferðamenn um ástand stofnsins. Læknar verða staðsettir víða um Skagafjörð og mæla blóðþrýsting ferðamanna. Skotheld vesti og ýmiss veiðibúnaður er seldur í Skagfirðingabúð. Rammgerð rimlabúr og músagildrur seldar í Kaupfélagsins. Skagafjörður – iðandi af lífi og dauða. Nýr og spennandi möguleiki í ferðaþjónustu.

Þetta bréf barst mér í tölvupósti og mátti til að setja það á bloggið mitt svo aðrir gætu lesið.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Spennnnnnnnnnnnnandi Nú veit ég hvert ég skelli mér í sumarfrí

Guðrún Sæmundsdóttir, 23.6.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband