Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár

Alveg gleymdi ég mér í allri gleðinni að láta vita af afmælisbarni mánaðarins sem er auðvita minn ekta maki og varð hann fimmtugur 3ja janúar. Hann eldist bara nokkuð vel þessi elska varla að það sjáist grátt hár á höfði hans, það er náttúrulega af því að ég hugsa svo vel um hann og er honum ekkert erfiðHalo. En hann hefur stækkað svolítið á þverveginn en það er nú bara af því að ég er svo góður kokkur.Whistling Svo er eitt sem kemur svolítið á óvart það er það að hann hefur aðeins verið að vaxa upp úr hárinu karl greyið en það hefur náttúrulega ekkert með mig að geraW00t. Ég hef alltaf verið mjög ánægð með hæðina á honum, því ef ég fer í hælaskó þá er ég aðeins stærri en hann, og mér leiðist það nú ekki.Wink Allavega hann er bara flottur eins og hann er og ég bara nokkuð sátt.


Er ekki að tapa mér

Kæru vinir nú haldið þið að ég sé endanlega að klikka farin að tala við gamlan Bens í skúrnum hjá mér.LoL

Ég hef nú líka verið að ræða við Camaróinn sem er þarna og lætur hann nú bar vel af dvöl sinni í skúrnum og er bara ánægður með að fá að vera í friði enda búið að sprauta hann. Og hann bíður spenntur eftir að losna við Bensann því þá fær hann meira pláss.Wink

Ekki vera að hafa áhyggjur mér líður bara vel Happy ( ég hef þá eitthvað að gera á daginn) ha ha ha

 


Ekkert sérstakt

Gamli minn er löngu búin að eiga afmæli og óþarfi að hafa afmælisfréttina lengur sem nýjustu færslu.

Þar sem lítið er að gerast hjá mér þessa dagana annað en að tína jólaskrautið niður og baka pínulítið þá ætla ég að setja nokkrar myndir hér inn.

p1010539_767703.jpg

 Hver er þetta?

 

p1010542.jpg

Upprennandi bifvélavirki

p1030545.jpg

Karen og Alexander Svavarsbörn

pc310486.jpg

Hugaður með stjörnuljós


Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins er minn heitt elskaði eiginmaður. Bara eitt ár í fimmtugt.

Elsku karlinn minn til hamingju með afmælið.

Þar sem ég setti mynd inn í gær þá er ég ekkert að setja nýja í dag, fæturnir verða að duga.

Já eitt var eftir GLEÐILEGT ÁR  lesendur góðir


Besta jólagjöfin

Húsbóndinn fékk þessa í jólagjöf og hefur ekki gert neitt annað en að ganga um gólf, því líkur munur aldrei ló eða skítur á gólfinu. Því að vera að fjárfesta í róbóta ryksugu og skúringagræju.

_cid_031594613_02122008-194e.jpg

 Minn fór sko í fótsnyrtingu fyrir jólin. Smile


Þorláksmessutónleikar

Eitthvað fannst mér ég vera að svíkjast um á Þorláksmessukvöld. Sitjandi í Háskólabíó á tónleikum hjá  Bubba, ekki vön að sitja og slaka á þetta kvöld. Tónleikarnir voru bara góðir og alltaf kann ég betur við Bubba í gallabuxunum og með kassagítarinn.

Ég er alltaf að komast að því betur og betur að aldurinn er farinn að segja til sín. Farin að pirra mig á hinu og þessu sem hafði ekki áhrif á mig hér áður fyrr. Á sitjandi tónleikum finnst mér að fólk eigi að sitja og njóta en ekki vera á þessu ands...... rápi. Opin bar var í sælgætissölunni og var fólk á sífeldu rápi að ná sér í drykki og svo náttúrulega að losa sig við þá þess á milli.

Nú er ég farin að  hljóma eins og kona í vesturbænum ! Hvað með það ég er nú orðin fimmföld amma og má líklega nöldra svolítið ha ha ha.Halo

 


Gleðileg jól

Þá er drengurinn búin að klára skólann og allt gekk vel. Hann er nú kannski ekki drengur lengur, alveg að skríða í þrítugt. En hann verður nú samt alltaf drengurinn hennar mömmu.Halo

Nú eru jólin að skríða í garð og eru barnabörnin alveg að fara á límingunum af spenningi. Og amma líka því ekkert veit ég skemmtilegra en að fylgjast með börnum upp lifa jól.

Amma gamla stendur sig nú ekki almennilega því kúturinn minn hann Alexander Guðni átti afmæli í gær og er orðin tveggja ár. Þó seint sé  þá elsku kútur TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ.

DSC01313

Skondið er það að Svavar minn og Ólafur hans Nonna bróðir eiga afmæli sama dag og voru nú ekki nema þrjár mínútur á milli fæðinga þeirra. Ólafur og Benna konan hans eignuðust dóttir í gær. Sem sagt 22 des .

Ég óska öllum lesendum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Góðar stundir.


Búin með baksturinn

Jæja þá er ég búin að jafna mig eftir kökubaksturinn. Búin að baka nokkra daga í röð, það er verst hvað heilsan verður léleg eftir svona bakstur. Ég var farin að halda að ég væri bara komin með flensu,en þar sem ég hef nú smá kommonsens það vissi ég að það væri bara grandinu að kenna.

Nú er allt í fullum undirbúningi fyrir útskrift frumburðarins, loksins loksins komið að því.

Erum við hjónakornin því líkt stolt af honum. Þetta hafðist með þrjósku,svita og tárum og á hann heiður skilið fyrir að ljúka þessu. Bæði les og tölublindur. Þá er bara sveinsprófið eftir og verður það líklegast í febrúar þá verður hann bílasprautari.

Góðar stundir


Jólakökuuppskrift

Geggjuð uppskrift að jóla ávaxtaköku

Lesið vel.

1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand

Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt.
Takið stóra skál.
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið.
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla.
Slökkvið á hrærivélinni.
Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu
ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með
rúfskjárni.
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið.
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
Smyrjið ofninn.
Stillið kökuformið á 250°.
Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
Hendið skálinni út um gluggann.
Athugið Grandið aftur. Farið að sofa.
(Finnst ykkur ávaxtakökur nokkuð góðar hvort sem er?).


Tónlistarveisla

Lionsklúbburinn Fjörgyn var með styrktar tónleika í Grafarvogskirkju í gærkvöldi. Allur ágóði rennur til Bugl.

Fjölmargir listamenn gáfu vinnu sína og urðu þessir tónleikar að einni allsherjar tónlistarveislu.

Karlakór Reykjavíkur byrjuðu veisluna og eru þeir bara góðir.´

Páll Óskar og Monika svíkja engan, flott útsett hjá þeim harpan og röddin hans Palla. Páll Óskar á engan sinn líkan, mætti í silfur pallíettujakkanum sínum og var náttúrulega lang flottastur. Ég dáist að þeirri manneskju sem saumaði þennan jakka því það getur ekki verið auðvelt að sauma úr þessu efni.

Næstur kom svo K.K. látlaus að vanda með sitt rólega fas. Bara ljúfur eins og alltaf.

Egill Ólafsson svíkur engan, hefur skemmtilegan húmor og fékk fólk til að hlæja.

Diddú bara góð,brosið, söngurinn og öll hennar framkoma hlýjar manni.

Páll Rósinkranz var góður í gospellinu.

Ellen Kristjáns og Eyþór Gunnars eru alltaf ljúf og hafa róandi áhrif á mann.

Hjörleifur Valsson og Vladim Fedorov  snillingar.

Hörður Torfa alltaf gaman að hlusta á hann.

Lay Low róleg og yfirveguð að vanda.

Óskar Pétursson og Örn Árna létu gamminn geysa og tóku vel á móti Guðna Ágústssyni og svo sungu þeir líka, þeim er margt til lista lagt.

Stefán Hilmarsson góður.

Þá kom aðal trompið að mínu mati Gissur Páll Gissurarson. Frekar nettur maður með stóra og fallega rödd, Hamraborgin varð heldur betur fögur í flutningi hans. Því lík rödd .

Voces Masculorum karlakór söng Island er land þitt og var það alveg frábært.

Raggi Bjarna er stuðkarl af guðs náð og tjúttaði alla í salnum upp. Fékk hann alla til að syngja  og taka smá dansspor með.

Ég er óskaplega glöð að eiginmaður vinkonu minnar skyldi ekki vilja fara á tónleikana þá hefði ég verið heima og misst af þeim. Hann á bestu þakkir fyrir.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband