Arfgeng heilablæðing

Kæru blogglesarar

Mig langar til að vekja athygli ykkar á söfnun sem fram fer í Reykjanesbæ til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu.

Fimmtudaginn 14. apríl n.k. kl.20:00 til 23:00
styrktartónleikar í 88.húsinu Keflavík til fjáröflunar
á arfgengum heilablæðingum
á HipHop unglingatónleikum
fyrir 8.-10.bekk.

  Kynnir kvöldsins er Ástþór Óðinn og fram koma:
Orri Err
Þriðja Hæðin
Bjartur Elí
Karen Páls
Mollý
Birgir Örn
Kristmundur Axel
Daniel Alvin
Júlí Heiðar
Óskar Axel

Húsið opnar kl 19:00, tónleikarnir byrja 20:00 og standa til 23:00 og á staðnum verða seldar Pizzur, gos, sælgæti og fleira.  Einnig verður fatamarkaður, 5 flíkur á 1500 kr.

MIÐASALA byrjar í 88.húsinu fimmtudaginn 7.apríl og miðaverð 700kr (einnig verður selt við hurð)

Allur ágóði rennur beint til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu.

ÁFENGIS OG VÍMUEFNALAUS SKEMMTUN :)

Laugardaginn 16. apríl n.k. kl.13:30-17:00
barnaskemmtun í 88.húsinu Keflavík til fjáröflunar
á arfgengum heilablæðingum

 Kynnir er Björgvin Franz og fram kemur:
Danssýning frá Brynballet
Barna tískusýning
Söngvaborg
Latibær kíkir í heimsókn
Skoppa og Skrítla
Leikhópurinn Lotta
Marína Ósk og Dìana Lind Monzon

Miðaverð er 500 kr og selt verður við hurð.  Á staðnum verða seldar kökur, kleinur, sælgæti, svalar, kaffi, gos og fleira.  Eygló Gísladóttir verður með myndlistarsýningu á staðnum.  5 flíkur í poka á 1500 kr.

Endilega gerið dag úr þessu og kíkið við á frábæra skemmtun fyrir börnin jafnt sem og fullorðna!

Allur ágóði rennur beint til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu.

 

 


Bloggari ársins

Alveg að verða komið ár og ég ekki svo mikið sem leitt hugan að henni Gilitrutt. Reyni nú að bæta fyrir ósóman hjá mér.Gilitrutt er nefnilega vinkona mín frá því á unglingsárunum.Hugsar maður ekki alltaf til vina sina svona rétt fyrir jólin. Ég er líklega að detta í það farið því ver og miður.

Gleðileg Jól mín kæra vinkona Gilitrutt verð í sambandi við þig vonandi fljótt Halo


Gleðilegt ár

Gleðilegt ár

Alveg gleymdi ég mér í allri gleðinni að láta vita af afmælisbarni mánaðarins sem er auðvita minn ekta maki og varð hann fimmtugur 3ja janúar. Hann eldist bara nokkuð vel þessi elska varla að það sjáist grátt hár á höfði hans, það er náttúrulega af því að ég hugsa svo vel um hann og er honum ekkert erfiðHalo. En hann hefur stækkað svolítið á þverveginn en það er nú bara af því að ég er svo góður kokkur.Whistling Svo er eitt sem kemur svolítið á óvart það er það að hann hefur aðeins verið að vaxa upp úr hárinu karl greyið en það hefur náttúrulega ekkert með mig að geraW00t. Ég hef alltaf verið mjög ánægð með hæðina á honum, því ef ég fer í hælaskó þá er ég aðeins stærri en hann, og mér leiðist það nú ekki.Wink Allavega hann er bara flottur eins og hann er og ég bara nokkuð sátt.


Nú fer hver að verða síðastur að fá sér smá glögg fyrir jólin

Og fyrst við erum komin í jólafíling, þá vildi ég minna á finnska jólaglöggið,

svona ef þið viljið skapa smá jólastemmingu í aðventunni.

******************************************************************************
FINNSKT JÓLAGLÖGG

1 lítri vodka
1 rúsína

Hrært og skreytt með greni

oooha'held'é !

******************************************************************************

Og svo syngja allir með !

Skín í væna vínflösku
Og huggulega bjóra
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl'að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum ill'í desember
burt með sokk og skó
hér af vín'er nóg.
Ó hvað ég elska jólin
von'ég hitt'á stólinn.


Biðin gæti orðið ansi löng

Niðurskurðarhnífnum beitt þar sem síst skyldi. Biðin eftir endurhæfingu hefur nú verið heldur löng hingað til.  Hvað verður í nánustu framtíð? Það hljóta færri að komast að í einu þegar að hjúkrunarfólki fækkar. Húrra fyrir heilbrigðisráðherra.Vona að háttvirtur ráðherra þurfi ekki á endurhæfingu að halda því biðin gæti orðið löng.


mbl.is 14 sagt upp hjá Reykjalundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisbörn ágúst og september

Hann á afmæli í dag hann Elvar Breki prins hann er eins árs í dag

p7180866.jpg

Og Karen Dögg prinsessan mín var fjögra ára 4 ágúst

p1030552.jpg

 


Og nú brosa vinstri menn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Langt er síðan að vinstrimenn og konur hafa getað brosað jafn breitt, skattahækkanir er fylgifiskur þeirra.  '' Húrra húrra fyrir þeim''Devil
mbl.is Ekki meira en 45% skattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á afmæli í dag

Þá er kúturinn hann Mikael Máni orðin 4 ára

p2270584.jpg

Til hamingju elsku kúturinn minn


Leigan hækkar og hækkar

Ég er ekki hissa á því að námsmenn séu í stórum stíl að flytja heim í foreldrahús aftur. Leigan hjá byggingafélagi námsmanna er alveg út úr kortinu. Í apríl auglýstu þeir til leigu nokkrar íbúðir og voru allir velkomnir að sækja um þær hvort sem um námsmann var að ræða eða aðra. Dóttir mín sótti um svo kallaða paraíbúð og fékk hana var leigan þá ca 79 þúsund plús hússjóður og rafmagn samtals ca 83.500. Í dag fór hún að sækja samninginn og var leigan þá komin í rúmar 85 þúsund plús rafmagn og hússjóður. Það kom nú hik á hana, hvernig á hún að geta gert samning til 1 árs ef leigan hækkar svona á milli mánaða. Hvernig eiga námsmenn sem eru á námslánum að geta staðið undir þessum hækkunum. Því ekki geri ég ráð fyrir að námslánin hækki í samræmi við aukin útgjöld. Hvað verður leigan há eftir 6 mánuði?

Hann á afmæli í dag

Kúturinn minn hann Kristian Helgi á afmæli í dag

p1010542_851750.jpg

Til hamingju kúturinn minnSmile


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband