Biðin gæti orðið ansi löng

Niðurskurðarhnífnum beitt þar sem síst skyldi. Biðin eftir endurhæfingu hefur nú verið heldur löng hingað til.  Hvað verður í nánustu framtíð? Það hljóta færri að komast að í einu þegar að hjúkrunarfólki fækkar. Húrra fyrir heilbrigðisráðherra.Vona að háttvirtur ráðherra þurfi ekki á endurhæfingu að halda því biðin gæti orðið löng.


mbl.is 14 sagt upp hjá Reykjalundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur ekki verið breytt þeim fjölda sem stofnunin á að sinna á ári. Þjónustan breytist. Jafnmargir eiga að komast að og biðlistar ættu ekki að lengjast. Læknarnir ráða því hver kemst að og hvenær. Þeim var ekki fækkað. Starfsfólkið mun bara hlaupa hraðar og vinna meira fyrir minni pening. Sem sagt: Ekkert nýtt frá endurhæfingarvígstöðvunum. Grensásdeildin var skorin hastarlega niður í vor.

O3 (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 20:04

2 identicon

Ég held að starfsfólkið á Reykjalundi geti einfaldlega ekki unnið hraðar og meira en það gerir nú þegar.  Þar er einstakt starfsfólk og ömurlegt að skorið sé niður á þessum stað sem gerir svo frábæra hluti.

Anna (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 20:28

3 identicon

Einmitt Anna! Einhverstaðar hljóta mörkin að liggja.

O3 (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband